19.05.2012
 Samkoma í safnaðarheimili Grensáskirkju sunnudaginn 20. maí kl. 17:00
Ræðumaður verður Abraham Meulenberg frá Saddleback kirkjunni í Kaliforníu. Hann mun tala um sjálfvalið efni.
Ég hvet ykkur til að bjóða fólki með ykkur því að hann er mjög lifandi og skemmtilegur ræðumaður.
Þar sem ég sit í veðurblíðunni uppi í sumarbústað fjölskyldunnar man ég satt að segja ekki hvað annað efni verður á samkomunni en hún verður án efa góð ef við mætum og biðjum fyrir henni.

Bænastund í kapellu Grensáskirkju kl. 16:30
Hressing og samfélag á eftir samkomu
Nánar »  
 19.05.2012
 Fjölskylduvika á Eyjólfsstöðum 11. - 16. júní 2012
http://www.kristskirkjan.is/
Nánar »  
 19.05.2012
 Löngumýrarmót 20. - 22. júlí
Árlegt kristniboðsmót SÍK verður skv. venju haldið 20. - 22. júlí. Fólk hefur verið mjög ánægt með þessi mót, bæði með fræðsluna og góða fjölskyldustemningu sem þar hefur ríkt. Saltarar hafa verið duglegir að mæta undanfarin ár og gaman væri ef þeir fjölmenntu líka í sumar. Hægt er að kaupa sér gistingu inni og fæði m.þ.a. hafa samband við staðinn. Halda má kostnaði verulega niðri m. þ. a. sofa í tjaldi og sjá jafnvel sjá um sinn eigin mat. Hægt er að kaupa stakar máltíðir. Hafið þetta á bak við eyrað þegar þið skipuleggið sumarið. Sérstakur gestur mótsins verður Fanney Ingadóttir, kristniboði í Kenýju, sem verður stödd á landinu í stuttri heimsókn. http://www.facebook.com/events/189637644421438/ http://www.sik.is/frettir/1-sik-frettir/454-kristniboesmot-a-loengumyri-16-18-juli
Nánar »  
 29.04.2012
 Viltu verða ríkur? - Samkoma í safnaðarheimili Grensáskirkju sunnudaginn 29. apríl kl. 17:00
Guðlaugur Gunnarsson fjallð um efnið viltu verða ríkur?
Sigurjón Gunnarsson fjármálafræðingur og bankamaður mun líka útskýra fyrir okkur hvað fjárhagslegt heilbrigði er
Lofjörð
Fyrirbæn

Bænastund í kapellu Grensáskirkju kl. 16:30, gott pláss!

Hressing og samfélag á eftir samkomu.
Nánar »  
 22.04.2012
 Samkoma í safnaðarheimili Grensáskirkju sunnudaginn 22. apríl kl. 17:00
Við fáum góða gesti frá Campus Crusade for Christ í Sviss, Thomas Weber og Hans Peter Neusch sem er framkvæmdastjóri samtakanna og hugmyndasmiður Krists dagsins í Sviss hefur verið haldinn þar a.m.k. þrisvar sinnum og safnað saman á þriðja tug þúsunda fólks úr öllum kirkjudeildum til að biðja fyrir þjóð sinni og gleðjast saman.
Það verður gaman að hlusta á þá. Þeir munu bæði segja frá starfi sínu og tala til okkar Guðs orð.

Annars verður snið samkomunnar hefðbundið, lofgjörð, fyrirbæn í lokin og hressing og samfélag á eftir.

Bænastund í kapellu Grensáskirkju kl. 16:30. Hvet ykkur til að fjölmenna. Tíminn sem fer í stundina er góð „fjárfesting“.
Nánar »  
 14.04.2012
 Samkoma í Grensáskirkju sunnudaginn 15. apríl kl. 17:00 (ekki í safnaðarheimili)
Skúli Svavarsson kristniboði sem er nýkominn heim eftir nokkurra mánaða dvöl í Pókothéraði í Kenýu mun segja frá starfinu þar. Hann mun einnig verða með prédikun dagsins og tala út frá yfirskriftinni Ertu umsnúinn?
Katrín Guðlaugsdóttir verður með vitnisburð.
Lofgjörð
Fyrirbæn í lok samkomu

Hressing og samfélag á eftir.
Bænastund í kapellu Grensáskirkju kl. 16:30.
Nánar »  

1  2  3  4  5  6  7  8  9  10  11  12  13  14  15  16  17  18  19  20  21  22  23  24  25  Næsta síða 
SALT Kristið Samfélag - Grensáskirkju - 108 Reykjavík - www.saltks.is - salt@saltks.is - kt.510507-1500 - Banki: 0313-13-301864
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is